Hrossasmölun 2010
Hér fyrir neðan eru gangnaseðlar fyrir hrossasmölun 2010.
Stóðréttardansleikur verður haldinn í Funaborg þann 2. október n.k. kl. 23:00.
Húsið opnar kl: 22:00.
Hljómsveitin Cantabil leikur fyrir dansi fram á nótt.
Miðaverð aðeins kr. 1500.-
Nú er um að gera rífa sig upp úr sófanum og skella sér á alvöru sveitaball.
Hestamannafélagið Funi
Sunnudagaskólinn í Eyjafjarðarsveit hefst á ný 12. september

Sunnudagskólinn hefur göngu sína þetta haustið sunnudaginn 12. september kl. 11. Samverurnar verða eins og verið hefur í Hjartanu í
Hrafnagilsskóla. Öll börn eru velkomin, alveg sama á hvaða aldri þau eru og einnig þykir okkur einstaklega gaman að fá foreldra með á
samverurnar. Samverur verða svo fram að jólum á eftirtöldum dagsetningum: 26. sept, 10. okt, 24. okt, 7. nóv, 21. nóv og 5. des. Hlökkum til að
sjá sem flesta.
Með kveðju frá Brynhildi, Hrund og Katrínu.
Nánari upplýsingar:
http://kirkjan.is/laugalandsprestakall/2010/09/sunnudagaskolinn-i-eyjafjar%c3%b0arsveit-hefst-a%c3%b0-ny-12-september/#more-61
Hér að neðan má sjá gangnaseðla fyrir fjárgöngur í Eyjafjarðarsveit. Á þeim koma fram
þeir aðilar sem sleppa fé á afrétt auk Fjallskilasjóðs. Göngur eru lagðar á fjáreigendur eftir fjárfjölda, þó
mismunandi eftir deildum og svæðum. Á seðlunum má sjá hvar er um 1/2 dagsverk að ræða og hvað gert er ráð fyrir mörgum mönnum
í 1. og 2. göngur.
Öngulstaðadeild fjárgöngur
Saurbæjardeild fjárgöngur
Hrafnagilsdeild fjárgöngur
1. göngur verða 4.-5. sept. nema norðan Fiskilækjar þar verða þær 11. sept.
Réttað verður laugardaginn 4. september í Hraungerðisrétt og Möðruvallarétt þegar gangnamenn koma að, og sunnudaginn 5. september í
Þverárrétt ytri kl. 10.
2. göngur verða 18.-19. sept.
Hrossasmölun verður 1.-2. október.
Stóðréttir verða laugardaginn 2. okt. í Þverárrétt ytri kl. 10 og Melgerðismelarétt kl. 13.
Það má með sanni segja að Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla hafi farið vel af stað þessa fyrstu tvo daga. Aðsóknarmet voru slegin strax fyrsta daginn. Hátíðin verður opin í dag sunnudag og á morgun mánudag klukkan 12-19. Fjöldi viðburða verða á dagskrá en hæst ber að nefna svokallaðan brunaslöngubolta en sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar mun etja kappi við nágrannasveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu. Leikar hefjast klukkan 14:30. Rúningur, tískusýningar, söguþorp, fegurðarsamkeppni landnámshænsna og fleira hafa glatt gesti hátíðarinna og mun gera næstu tvo daga. Á hátíðarsamkomu í gærkvöldi voru verðlaun veitt fyrir sölubás ársins en Volcano design og Krista design fengu þann titil. Einnig er Handverksmaður ársins 2010 valinn hvert ár og nú var það Ragnar Arason rennismiður frá Höfn í Hornafirði sem fékk þennan eftirsóknarverða titil.
Um næstu helgi verður Eyjaförður undirlagður í hátíðum en Handverkshátíð
verður haldin dagana 6.-9.ágúst. Meðal viðburða í tengslum við hátíðina verður brunaslöngubolti þar
sem sveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu munu takast á. Leikirnir fara fram á fótboltavellinum við
hátíðarsvæðið n. k. sunnudag og hefjast kl. 14:30. Búist er við fjörugum kappleik. Sveitarstjórnir sem taka þátt eru
Grýtubakkahreppur, Svalbarðasstrandahreppur, Hörgárbyggð, Akureyri og Eyjafjarðarsveit.
Brunaslöngubolti fer þannig fram að spilað er á fótboltavelli með tvö mörk. Markmaður hvors liðs fær brunaslöngu sem
nýta skal til varnar. Liðin eiga svo að keppast við að skora mark hjá andstæðingnum og þá sérstaklega að komast framhjá
brunaslöngumarkmanninum.

Hvern dag klukkan 16 munu hönnuðir standa að tískusýningu á svæðinu.
Viðburður sem vert er að skoða því mikið af flottum hönnuðum og framleiðendum taka þátt.

Það er orðinn ómissandi hluti Handverkshátíðar að fá vélasýningu frá áhugahópi sem vinnur að uppbyggingu búvélasafns í sveitinni. Hluti vélanna þeirra verður til sýnis á hátíðinni.

Félag landnámshænsna tekur þátt í hátíðinni og verða með sýningu á 60 fuglum. Þar verður keppt um fallegasta fuglinn en gestir hátíðarinnar munu kjósa. Úrslit verða kunngjörð á sunnudeginum og titillinn er alltaf mjög eftirsóttur svo ekki sé meira sagt. Ungar munu skríða úr eggjum á hátíðinni og mun ungviðið örugglega gleðja auga hátíðargesta.