Norðurinngangur lokaður vegna framkvæmda frá mánudeginum 19. október
Frá og með mánudeginum 19. október verður norðurinngangi Hrafnagilsskóla og íþróttamiðstöðvar lokað vegna framkvæmda. Búist er við að framkvæmdir taki nokkrar vikur. Á meðan þessu varir er gestum bent á bílastæðið sunnan megin við bygginguna, en starfsfólk mun áfram þurfa að nota bílastæðin norðan megin.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
13.10.2026
Fréttir