Fréttayfirlit

Uppbyggingarsjóður opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar, menningar og samfélagsþróunar á Norðurlandi eystra. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 29. september kl. 12:00 á Teams. Á fundinum verður farið yfir helstu atriði varðandi umsóknir í sjóðinn og umsóknarferlið. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um sjóðinn áður en umsókn er send inn. Allar nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð, úthlutunarreglur og umsóknir má finna á Uppbyggingarsjóður | SSNE.is
21.09.2026
Fréttir

Lokað á bókasafninu í dag 18. september

Vegna óviðráðanlegra orsaka er lokað á bókasafninu í dag föstudaginn 18. september 2026. Beðist er velvirðingar á því.
18.09.2026
Fréttir

Póstkassar - póstbox

Búið er að taka niður póstkassana í Hrafnagilshverfi og geta þeir sem vilja nálgast sinn póstkassa á gámasvæðinu. Best er að fara á opnunartíma þess sem er kl. 13-17 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Póstkassarnir eru norðanmegin á plani gámasvæðisins.
17.09.2026
Fréttir

Deildarstjóri í Krummakot

Leikskólinn Krummakot óskar eftir að ráða deildarstjóra. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í desember eða eftir nánar samkomulagi. Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi 12 km sunnan Akureyrar. Í skólanum eru nú um 75 börn á fimm deildum.
17.09.2026
Fréttir

Afleysing á deild - Krummakot

Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi til að sinna afleysingum á deild hjá okkur vegna fæðingarorlofs. Mikill möguleiki fyrir áframhaldandi ráðningu. Hlutverk afleysingamanneskju er mjög mikilvægt til að halda uppi samfellu og öryggi í dagskipulagi leikskólans. Við leitum að einstaklingi með áhuga á að vinna með börnum og starfa í lifandi og skemmtilegu umhverfi.
17.09.2026
Fréttir

Dagskrá Íþróttaviku Evrópu

Nú hefur dagskrá Íþróttaviku Evrópu litið dagsins ljós. Þar sameinast félagasamtök og einkaaðilar sveitarfélaginu í að búa til sem fjölbreyttasta dagskrá sem allir geta nýtt sér án endurgjalds.
17.09.2026
Fréttir

Hreyfidagskrá 60+ komin af stað

Búið er að uppfæra dagskrá 60+ aldurshópsins fyrir veturinn. Félag eldri borgara í Eyjafjarðarsveit, Ungmennafélagið Samherjar og Eyjafjarðarsveit sameinast um gerð fjölbreyttrar hreyfidagskrár fyrir aldurshópinn og lítur hún svona út í vetur:
15.09.2026
Fréttir

Fundarboð 682. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

FUNDARBOÐ 682. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitarverður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 17. september 2026 og hefst kl. 08:00.
15.09.2026
Fréttir

Íþróttavika Evrópu 23. - 30. september

Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. - 30. september n.k. samkvæmt venju. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Íbúar Evrópu koma saman í þessu verkefni undir slagorðinu #BEACTIVE. Aðgangur að viðburðum íþróttavikunnar er án endurgjalds. Ungmennafélagið Samherjar mun bjóða upp á opnar æfingar í ýmsum íþróttagreinum auk þess sem félagasamtök og einkaaðilar munum opna sína starfsemi. Þá verður frítt í sund þessa viku. Fjölskyldufjör verður í íþróttamiðstöðinni laugardaginn 26. september í umsjá ungmennafélagsins en þar munu fjölskyldur geta komið saman milli kl. 16 og 18 og leikið sér í ýmsum íþróttum. Enn er hægt að koma viðburðum á dagskrá íþróttavikunnar og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Karl Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfanginu karlj@esveit.is ef þeir hafa hugmyndir sem vert væri að skoða nánar. Dagskrá íþróttavikunnar verður birt í næstu viku.
10.09.2026
Fréttir

10 ára starfsafmæli í íþróttamiðstöðinni  

Ásta Heiðrún Stefánsdóttir á um þessar mundir 10 ára starfsafmæli í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar. Ásta hefur staðið vaktina allt frá því í september 2016 og af þessu tilefni var skellt í smá kaffisamsæti henni til heiðurs. Við óskum Ástu til hamingju með þessi tímamót.
09.09.2026
Fréttir