Fréttayfirlit

Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir afleysingu á deild

Sjá nánar hér
09.04.2026
Fréttir

Syðri-Varðgjá íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit – kynning tillögu á vinnslustigi

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 16. apríl sl. að kynna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) í Eyjafjarðarsveit skv. 4 mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir um 9 ha svæði ...
30.04.2026
Fréttir

Tilkynning frá Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar: Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026.
30.04.2026
Fréttir

Nýtt bókunarkerfi á tjaldsvæðinu tekið í notkun

Reisa verður nýr þjónustuaðili bókunarkerfis tjaldsvæðisins í Hrafnagilshverfi frá og með 1. maí. Reisa tekur við af bókunarkerfi Parka sem verið hefur í notkun undanfarin ár. Opnað verður fyrir bókanir þann 1. maí n.k. Tjaldsvæðið opnar formlega 15. maí þar sem opið verður fyrir vatn og salernisaðstöðu á útisvæði, en salerni og sturtuaðstaða innandyra verður opnað um leið og Hrafnagilsskóli lýkur sínu skólaári. Fram að því geta tjaldsvæðisgestir nýtt sér sturtuaðstöðu í íþróttamiðstöðinni á opnunartíma hennar.
28.04.2026
Fréttir

1. maí hlaup UFA

Verður haldið á Þórsvelli föstudaginn 1. maí. Frítt fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Leikskólahlaup: 400 m fyrir börn fædd 2020 og síðar Grunnskólahlaup: Val milli 2 km eða 5 km Fólk á öllum aldri: 5 km hlaup Skráningarfrestur er til kl. 20:00 fimmtudaginn 30. apríl Keppnisgögn (númer) og sundmiðar verða afhent í Íþróttahöllinni fimmtudaginn 30. apríl milli kl. 16:00 og 20:00. Athugið ekki verður hægt að sækja númer á hlaupdegi. Skráning og nánari upplýsingar um hlaupið á www.ufa.is
28.04.2026
Fréttir

Fundarboð 676. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

676. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 30. apríl 2026 og hefst kl. 16:00.
28.04.2026
Fréttir

Opnar dyr í Eyjafjarðarsveit

Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl, milli kl. 13 og 17 ætlum við að opna dyrnar upp á gátt og bjóða vörur okkar og þjónustu. Við leggjum mikinn metnað í það sem við bjóðum upp á og fjölbreytnin er gríðarleg. Skellið ykkur á rúntinn í Eyjafjarðarsveit og kynnið ykkur málið.
23.04.2026
Fréttir

Laus staða heimilisfræðikennara í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit

Við óskum eftir að ráða heimilisfræðikennara í 80-100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um er að ræða ótímabundið starf. Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km. fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Hrafnagilsskóli hefur hefur sýn sem byggir á skilningi, fagmennsku og dyggðum. Agastefna skólans er Jákvæður agi og meðal einkenna skólans er umhverfismennt, öflug list- og verkgreinakennsla ásamt nýtingu tækni til náms. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.
22.04.2026
Fréttir

Norðurþing, 15. apríl 2026 - Ályktun Ungmennaþings SSNE 2026

Ungmennaþing SSNE 2026 skorar á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra að tryggja að ungmennaráð verði virkur og eðlilegur hluti af ákvarðanatöku sveitarfélaga. Ungt fólk vill taka þátt, láta í sér heyra og hafa áhrif — sérstaklega í málefnum sem snerta líf þeirra, aðstæður og framtíð. Ungmennaráð eru mikilvægur vettvangur fyrir slíka þátttöku og eiga ekki að vera til málamynda heldur raunveruleg rödd í stjórnsýslu sveitarfélaga. Ungmennaþingið leggur áherslu á að: Ungmennaráð fái skýrt hlutverk og raunverulegt umboð, ungmennaráð séu höfð með í ráðum þegar fjallað er um málefni sem varða börn og ungmenni, skýrar boðleiðir séu milli ungmennaráða, nefnda og sveitarstjórna og að tekið sé mark á tillögum og sjónarmiðum ungmennaráða, með skýrum svörum og eftirfylgni. Ungmennaþing SSNE hvetur framboð til sveitarstjórna til að gera þátttöku ungmennaráða að skýrum hluta af stefnu sinni og sýna í verki að rödd ungmenna skiptir máli. Virkt lýðræði byggir á því að ungt fólk hafi tækifæri til að hafa áhrif – ekki aðeins í framtíðinni, heldur hér og nú.
21.04.2026
Fréttir

Laus staða íþróttakennara í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit

Við óskum eftir að ráða íþróttakennara í 80-100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár og er íþróttakennsla u.þ.b. 60% af starfinu. Önnur kennsla getur verið eftir áhugasviði og sérmenntun viðkomandi. Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km. fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Hrafnagilsskóli hefur hefur sýn sem byggir á skilningi, fagmennsku og dyggðum. Agastefna skólans er Jákvæður agi og meðal einkenna skólans er umhverfismennt, öflug list- og verkgreinakennsla ásamt nýtingu tækni til náms. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.
21.04.2026
Fréttir