Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit óskar eftir að ráða starfsmann í blönduð störf
Um er að ræða 100% starf frá 1. nóvember.
Leitað er eftir starfsmanni sem hefur:
• Mikinn áhuga á uppeldi og menntun barna
• Ánægju af starfi með börnum
• Góða samskipta- og samstarfshæfileika
• Áhuga á faglegri uppbyggingu leikskólastarfs
Krummakot er þriggja deilda leikskóli staðsettur í Hrafnagilshverfinu, 10 km sunnan Akureyrar. Fjöldi nemenda er rúmlega fimmtíu og deildir aldursskiptar. Verið er að innleiða Jákvæðan aga og markvisst unnið með læsi, dygðir, umhverfisstarf, hreyfingu og tónlist.
19.10.2015