Frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar:
Málþing með yfirskriftinni: Á þröskuldi breytinga- þróun landbúnaðar við Eyjafjörð og framtíðarhorfur verður haldinn á Hótel Kea þriðjudaginn 3.maí kl. 20.00. Fundurinn er öllum opinn
Laugardaginn 30. apríl verður almannavarnaæfing haldin við Þverá í Eyjafjarðarsveit milli kl. 10 og 14. Reikna má með að vegurinn þar verði lokaður á meðan á æfingunni stendur. Vegfarendur eru beðnir um að sýna þessu skilning, virða lokanir og aka aðra leið rétt á meðan.
Eftirtaldir ferðaþjónustuaðilar innan Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar bjóða gestum og gangandi að kíkja í heimsókn á Sumardaginn fyrsta, 21. apríl n.k.
Tekið verður á móti ull í Eyjafjarðarsveit þriðjudaginn 19. apríl frá kl. 10:00-12:00 á Melgerðismelum og á Svertingsstöðum frá kl. 13:00-14:30.
Ullin þarf að vera merkt, vigtuð og skráð áður en komið er með hana á staðinn. Athugið að þetta er síðasta ferð í ullarsöfnun.
Upplýsingar veita Rúnar Jóhannsson s. 847-6616 / Birgir í Gullbrekku s. 845-0029
Ungmennasamband Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum í Landsmótssjóð UMSE 2009
Fyrri úthlutun ársins 2016 fer fram fyrir 1. júní.
Sjóðurinn hefur frá stofnun stutt vel við margvísleg verkefni. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að öflugara starfi hjá UMSE og aðildarfélögum þess. Sjóðurinn styrkir ýmis verkefni í innra starfi UMSE.
Við minnum á að á föstudag rennur út umsóknarfrestur um þátttöku á Handverkshátíðinni 2016. Veðrið hér á sýningarsvæðinu er með besta móti í dag og við höfum náð góðum samningum við veðurguðina um að fá bongóblíðu helgina 4. – 7. ágúst.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar verður opin alla páskana sem hér segir:
Skírdagur kl 10.00-20.00
Föstud langi kl 10.00-20.00
Laugardagur kl 10.00-20.00
Páskadagur kl 10.00-20.00
Annar í páskum kl 10.00-20.00
Gleðilega páska!
Eyjafjarðarsveit gerði nýlega samstarfssamning við Embætti landlæknis um þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Karl Frímannsson sveitarstjóri og Birgir Jakobsson landlæknir unirrituðu samninginn þann 15.mars síðastliðinn.
95. ársþing UMSE fór fram í Þelamerkurskóla 16. mars. Þingið var í umsjón Umf. Smárans. Mættir voru 33 af 44 mögulegum fulltrúum 13 aðildarfélaga og stjórnar. Þess ber að geta að öll aðildarfélög UMSE áttu fulltrúa á þinginu. Þingið var líflegt að venju og sköpuðust m.a. líflegar umræður um hlutverk og stefnu sambandsins.