Menntamálaráðuneytið boðar til opins borgarafundar til kynningar og umræðna um ný lög um skóla og menntun. Fundurinn
verður haldinn í Menntaskólanum á Akureyri 5. nóvember frá kl. 20:00 - 22:00.
Forvarnardagurinn verður haldinn í þriðja sinn næstkomandi, fimmtudag, 6. nóvember, um land allt. Forvarnardagurinn er haldinn að
frumkvæði forseta Íslands í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Bandalag íslenskra skáta, Ungmennafélag Íslands
o.fl. Nánari upplýsingar má fá með því að smella á tengilinn hér http://www.forvarnardagur.is/
Opnum að nýju eftir langa hvíld að Teigi, laugardaginn 1. nóvember kl. 10:00.
Opið verður alla daga nema mánudaga og miðvikudaga frá kl. 14:00-22:00.
Fjölbreytt úrval af list-og handverksvörum auk annarra gjafavara.
Opnunarhelgina er opið báða dagana frá kl. 10:00-22:00.
Sjáumst hress, ekkert kreppustress.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar er 20 ára um þessar mundir og á þeim tímapunkti er eðlilegt að blása til tónleikaveislu.
Vikuna 3. – 7. nóvember verðum við á faraldsfæti og höldum tónleika á hverjum degi.
Frá Björgunarsveitinni Dalbjörgu: Hin árlega reykskynjarayfirferð Dalbjargar verður farin helgina 1. – 2. nóvember.
Þetta verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, við munum fara í öll hús í sveitinni og selja rafhlöður fyrir reykskynjara og
einnig er hægt að panta slökkvitæki og sjúkrakassa hjá okkur.
Einnig munum við hafa Neyðarkallinn til sölu sömu helgi. Sala á honum er góð fjáröflun fyrir hjálparsveitina og því vonumst við
eftir góðum móttökum eins og undanfarin ár.
Nánari upplýsingar hjá Elmari í síma 8917981.
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari heldur tónleika í
Tónlistarhúsinu Laugarborg sunnudaginn 26. október kl. 15.00. Efnisskrá: Oliver Messiaen / Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
Tilefni tónleikanna er aldarafmælis tónskáldsins og hálfrar aldar afmæli píanóleikarans.
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni okkar, stendur íþrótta- og tómstundanefnd Eyjafjarðarsveitar fyrir
leikjaskóla fyrir 3. – 5. ára börn nú á haustmánuðum.
Ritstjórn heimasíðunnar bárust skemmtilegar myndir frá fyrstu kennslustundinni sem sjá með því að smella á tengilinn hér
að neðan.