Auglýsingablaðið

556. TBL 30. desember 2010 kl. 10:03 - 10:03 Eldri-fundur

Opnunartími skrifstofu Eyjafjarðarsveitar
Skrifstofan verður lokuð mánudaginn 3. janúar 2011. Opið verður frá 4. janúar milli kl. 10-14.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar


íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Opnunartími sundlaugar um áramótin:
31. desember - 1. janúar: lokað
2. janúar: opið kl. 10-17
Eftir það er sundlaugin opin:
Mánudag-föstudag kl. 06:30-20:00
Laugardag-sunnudag kl. 10:00-17:00
á helgidögum og almennum frídögum 10:00-17:00

Til barna, foreldra og forráðamanna
Frá og með 1. janúar 2011 breytist reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Börnum yngri en 10 ára verður þá óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki verður leyfilegt fyrir viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn í sinni umsjón, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann þeirra.
Virðingarfyllst, starfsmenn íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar


Mikilvæg tilkynning frá þorrablótsnefnd
Við viljum minna sveitungana á þorrablótið sem verður haldið þann 29. janúar á nýju ári. Nú er ekki seinna vænna en að fara að hugsa um dressið, því á komandi þorrablóti verður litaþema! Nú kemur í ljós hvort allir þekkja sína gömlu hreppi, en litaskiptingin fer auðvitað eftir þeim. Nefndin valdi litina á mjög lýðræðislegan hátt og féllu litir þannig:
öngulsstaðahreppur: Grænn
Hrafnagilshreppur: Rauður
Saurbæjarhreppur: Blár
Farið nú í fataskápinn, finnið liti við hæfi og komið rétt klædd á þorrablót!
Kveðja, nefndin


áramótakveðja
Við óskum íbúum Eyjafjarðarsveitar gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Fulltrúar F-Listans

Getum við bætt efni síðunnar?