Auglýsingablaðið

897. TBL 28. júlí 2017 kl. 09:43 - 09:43 Eldri-fundur

Veitingasala Umf. Samherja og Dalbjargar á Handverkshátíð
Skráning á vaktir í veitingasölu og eldhúsi vegna Handverkshátíðar fer nú fram og hvetjum við alla sem vettlingi geta valdið til að taka þátt í þessari gleði með okkur.

Inn á heimasíðu ungmennafélagsins, www.samherjar.is, er hægt að smella á hnapp sem opnar skráningarsíðuna fyrir vaktirnar.

Eldhús:
Þrískiptar vaktir alla dagana (fim-sun)
Æskilegt 5 á hverja vakt
09:00 – 13:00
12:00 – 16:00
15:00 – 20:00

Veitingasala:
Tvískiptar vaktir alla dagana (fim-sun)
Æskilegt 13 á hverja vakt
10:30 – 15:00
15:00 – 19:30
Krakkar sem eru að byrja í 8. bekk eru gjaldgengir í veitingasölu.

Krakkar:
Krakkarnir sjá um að vakta innganga og ferja brauð milli eldhúss og veitingasölu
Vaktaskipti á heila tímanum, róterað á milli vaktstöðva sem eru 6 talsins
11:00 – 19:00
Æskilegt er að sem flestir krakkar taki þátt en ekki þarf að vera allan daginn.

Við minnum á að þetta er mikilvægasta fjáröflun félaganna og forsenda þess að hægt sé að halda uppi jafn öflugu starfi og raunin er í dag. Æfingagjöld ungmennafélagsins eru einnig afar lág vegna þess hversu vel hefur tekist til með þessa fjáröflun.

Sjáumst á Handverkshátíð 2017
Stjórn Umf. Samherja


Sýningin UR BJÖRK
Sunnudaginn 30. júlí kl. 12 opnar sænska farandsýningin UR BJÖRK, eða úr birki, í Hrafnagilsskóla. Að sýningunni standa 22 handverksmenn og -konur sem skiptu á milli sín heilu birkitré og fengu það hlutverk að nýta allt efnið með frjálsum huga og höndum. Það tók hópinn 6 mánuði að vinna alla þessa 400 muni og það skal tekið fram að allt var nýtt af þessu tiltekna tré sem var 30 cm í þvermál og 25 m hátt. Sænski heimilisiðnaðar¬ráðu¬nauturinn Knut Östgård er einn af aðstandendum sýningarinnar en Knut er sérstakur gestur á Handverkshátíðinni í ár.
Sýningin er fengin hingað í tengslum við Handverkshátíðina og verður opin frá 30. júlí til 13. ágúst kl. 12-18. Miðaverð er 500 kr. fyrir fullorðna eða armband sem gildir á Handverkshátíðina, 1.000 kr.
UR BJÖRK er virkilega falleg og stórbrotin sýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

 

Kæru sveitungar
Hátíðisdagur á Smámunasafni Sverris Hermannssonar sunnudaginn 30. júlí. Smámunasafnið heldur uppá 14 ára afmælið og bíður aðgöngumiðann á hálfvirði. Kvenfélagið Hjálpin verður með glæsilegt kaffihlaðborð, kr 2.000.- fyrir manninn, á Kaffistofu safnsins milli kl. 14:00 og 17:00.
Á sama tíma verður einnig boðið upp á leiðsögn um Saurbæjarkirkju. Flóamarkaður verður í bílskúrnum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Stúlkurnar á Smámunasafninu


Námskeið í tengslum við Handverkshátíð 2017
Þema Handverkshátíðar 2017 er tré. Við munum gera okkar ástkæra tré hátt undir höfði og höldum hátíð trésins. Sænski heimilisiðnaðarráðunauturinn Knut Östgård ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni.
Knut er okkur af góðu kunnur og hefur útvegað Handverkshátíðinni sérfræðinga í þjóðlegu handverki í gegnum tíðina. Hann hefur unnið sem heimilisiðnaðar¬ráðu-nautur í 27 ár, haldið fjöldann allan af námskeiðum, gert fræðslumyndbönd, gefið út bækur og staðið fyrir sýningum og verkefnum sem hafa farið um öll norðurlöndin.
Knut ætlar að halda tvö námskeið og okkur finnst sérstaklega gaman að kynna aftur til leiks námskeiðahald í tengslum við Handverkshátíð. Gott og gaman að endurtaka það sem vel var gert hér á árum áður :-)
TVÖ NÁMSKEIÐ Í BOÐI – ÖRFÁ PLÁSS LAUS!

Námskeið 1 - skeiðar (Skedar)
14.-17. ágúst kl. 10-12.30
Verð kr. 15.000

Námskeið 2 – Burkar
14.-17. ágúst kl. 13.30-16
Verð kr. 15.000

Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á námskeið hjá Knut, vinsamlega senda tölvpóst á handverk@esveit.is.


Bókhaldsþjónusta
Færsla alhliða bókhalds, afstemning/uppgjör, gerð ársreikninga, vsk skattskil, skattskýrslugerð, launavinnsla ofl. Einnig er veitt aðstoð þeim, sem vilja sjálfir sjá um bókhaldið sitt. Tímabundin ráðning, hjálp á álagstímum. Innheimta viðskiptakrafna: Skráning/útsending greiðsluseðla, breytingar/niðurfelling á kröfum, útsendar innheimtuviðvaranir, áframsending til Innheimtuþjónustu Motus og þjónustuaðili sér um öll samskipti.
Boðið upp á að þjónustuaðili komi á vinnustað viðskiptavinarins og vinni með bókhald þar.
Heiðubók, Botni, 601 Akureyri, sími 615-2589, heidubok@gmail.com


Húsnæði óskast
Mjög rólegt par leitar að húsnæði. Erum með góðan hund og þurfum að komast þar sem er ekki eitthvað partystand alla daga. Vinsamlega hafið samband í tölvupósti: candymccorn@gmail.com eða síma 846-9903, Sigrún.


Óskum eftir húsnæði
5 manna fjölskyldu bràðvantar húsnæði til leigu í Eyjafirði. Helst langtímaleigu . Upplýsingar í síma : 8699530 og email mariannar79@hotmail.com
Kveðja, Maríanna og Árni Rúnar

Getum við bætt efni síðunnar?