Aðventukvöld Kirkjukórs Laugalandsprestakalls verður í Grundarkirkju

Aðventukvöld Kirkjukórs Laugalandsprestakalls verður í Grundarkirkju sunnudagskvöldið 8. desember kl. 20:00.

Ræðumaður kvöldsins er María Pálsdóttir frá Reykhúsum, prestur sr. Jóhanna Gísladóttir. Kristjana Arngrímsdóttir syngur einsöng og flytur nokkur lög með kórnum, flutt verða hefðbundin jólalög og sálmar en auk þess jólasálmur við lag Sigurðar Flosasonar, Frostið eftir Örn Eldjárn, Jólin alls staðar og fleiri alþekkt jólalög.

Gleðjumst saman í Grundarkirkju á öðrum sunnudegi í aðventu.

Kirkjukór Laugalandsprestakalls.