Fyrsta skóflustungan

Fyrsta skóflustungan af viðbyggingu við Hrafnagilsskóla verður tekin 19.september klukkan 16:00. Viðbyggingin mun meðal annars hýsa leikskóla, fjölnota sal, bókasafn, starfsmannarými og íþróttaaðstöðu.

Í tilefni dagsins er íbúum sveitarfélagsins boðið á athöfnina og í kaffisamsæti í mötuneyti Hrafnagilsskóla að henni lokinni.