Gaia hofið - djúp slökun og tónheilun með gong og kristal hljómskálum

Hjartanlega velkomin í djúpa slökun og tónheilun með gong og kristal hljómskálum kl. 20:00 á fimmtudagskvöldið 23. janúar í Gaia hofinu sem er í einstöku handútskornu mongólíu tjaldi í Leifsstaðabrúnum 15. Þóra Sólveig hefur verið með hugleiðslu, dans/hreyfingu í núvitund, slökun og tónheilun í Gaia hofinu í leigðu rými síðan 2015. Og á sér langa sögu í meðvitaðri hreyfingu sem gjörningalistakona með þjálfun í Body Weather og Body Landscape en djúp tengsl hennar við náttúruna allt frá uppvaxtarárunum í Eyjafjarðarsveit er kjarninn í öllu því sem hún gerir í lífi og listum. Dýrleif Þórunn verður með okkur að þessu sinni með sína reynslu, sérstöku næmni og hljóma. Skráning í sms/síma 857-6177.