Kvenfélagið Iðunn - Haustfundur í Félagsborg, Skólatröð 9

Föstudaginn 7. október, kl. 19:30, höldum við Iðunnarkonur haustfundinn okkar í Félagsborg, Skólatröð 9.
Boðið verður upp á snittur, kaffi, te og desert. Minnum á happdrættið, 1.000 kr.
Meðal annars verða sagðar ferðasögur með myndasýningu frá ACWW-ferðinni (Evrópuþing dreifbýliskvenna) sem haldið var í Glasgow í september.
Nýjar konur velkomnar.
Stjórnin.