Allt klárt til að taka á móti sýnendum

Þórunn Björk færði hátíðinni gestabókina að gjöf
Þórunn Björk færði hátíðinni gestabókina að gjöf

Handverkshátíðin verður sett á morgun í 22. sinn og mikið um dýrðir. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra setur hátíðina kl:12. Fjöldi nýrra sýnenda tekur þátt í ár og fjölbreytnin er mikil. Á útisvæðinu er risið 250 fermetra tjald þar sem matvælaframleiðendur hafa komið sér fyrir. Hátíðinni hefur fengið að gjöf 1,5 m háa gestabók klædda laxaroði og verður hún staðsett í hjarta sýningarinnar og hvetjum við gesti til að kvitta fyrir heimsókn sína í hana. Í fyrsta sinn er boðið upp á handverksmarkað sem fram fer föstudag og sunnudag. Uppskeruhátíðin hefst kl: 19:30 á laugardagskvöldinu og er hún öllum opin. Séra Hildur Eir Bolladóttir er veislustjóri og meðal þeirra sem fram koma eru Álftagerðisbræður, Pálmi Gunnarsson ásamt hljómsveit og prestatríó skipað séra Hildi Eir, séra Oddi Bjarna og séra Hannesi Blandon. Matreiðslumenn Greifans sjá um grillveisluna og verðlaunaðir verða handverksmaður ársins og sölubás ársins. Fjölbreytt dagskrá verður á útisvæðinu alla dagana. Tískusýningar, húsdýrasýning, gamlar vélar, miðaldabúðir, rúningur og börn í sveitinni mæta með kálfana sýna og keppa um hvert þeirra á fallegasta og best tamda kálfinn.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. fyrir 16 ára og eldri og 500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja og gildir aðgangsmiðinn alla helgina. Hlökkum til að sjá ykkur á Handverkshátíð 2014.