Alþingiskosningar 28. okt. 2017

Kjörskrá, vegna alþingiskosninga 28. október 2017, liggur frammi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar á almennum skrifstofutíma frá og með 18. október 2017. Almennur skrifstofutími er alla virka daga frá kl. 10:00 til 14:00. Kjörskráin mun liggja frammi til kl. 14:00 föstudaginn 27. október 2017.
Bent er á upplýsingavef innanríkisráðuneytisins www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna og þar geta kjósendur einnig kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá.

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Hrafnagilsskóla. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Þeir sem eiga erfitt með gang mega aka að inngangi skóla.
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt.
Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 899-4935.
Kjörstjórnin í Eyjafjarðarsveit 15. október 2017; Emilía Baldursdóttir, Ólafur Vagnsson og Níels Helgason.