Aukaúthlutun úr sóknaráætlun Norðurlands eystra fyrir árið 2020

Fréttir

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra auglýsa eftir
hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2020. Um er að ræða viðbótarfjármagn
af hálfu ríkisins sem veitt er í sóknaráætlanir landshluta, sem og aukið fjármagn
samtakanna, vegna áhrifa Covid-19 á samfélagið. Alls eru um 42 m.kr. í pottinum.

Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til
sóknaráætlunar Norðurlands eystra og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna. Óskað er eftir umsóknum um atvinnuskapandi verkefni á sviði
nýsköpunar-, atvinnuþróunar-, menningar- og umhverfismála sem geta hafist sem
fyrst. Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn samtakanna.

Umsækjendur sem ekki fengu styrk úr sóknaráætlun fyrr á árinu, eða telja þörf á
auknu fjármagni í verkefni, eru hvattir til að endurnýja umsóknir sínar og staðfæra
að núverandi aðstæðum. Yfirlit yfir áhersluverkefni Eyþings/SSNE má finna á vefnum
eything.is undir Sóknaráætlun.

FREKARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Ari Páll Pálsson aripall@ssne.is sími 464 0416
Baldvin Valdemarsson baldvin@ssne.is sími 460 5701
Vigdís Rún Jónsdóttir vigdis@ssne.is sími 464 9935

Hægt er að skila inn umsóknum til og með 30. apríl nk. á netfangið helgamaria@ssne.is 
Einnig má nálgast umsóknareyðublaðið á vef Eyþings, www.eything.is