Bjarnveig Ingvadóttir nýr formaður UMSE

Fimmtudaginn 13. mars fór fram 93. ársþing UMSE. Þingið var haldið að Rimum í Svarfaðardal í umsjón Umf. Þorsteins Svörfuðar. Vel var mætt á þingið og voru þátttakendur alls 44, fulltrúar frá aðildarfélögum og stjórn, gestir og starfsmenn þingsins. Þess má geta að fulltrúar frá 11 af 13 aðildarfélögum voru á þinginu, auk fulltrúa stjórnar og var mætingin 80% af mögulegum heildarfjölda fulltrúa sem telst mikil aukning frá fyrri árum. Var þetta í fyrsta sinn sem þingið er haldið að kvöldi til á virkum degi, sem skýrir líkleg góða þátttöku að hluta til. Sammæltust viðstaddir um að þessi tilhögun væri gæfuspor.
Þingið gekk vel fyrir sig og voru umræður bæði líflegar og málefnalegar. Alls voru 16 tillögur samþykktar, sem munu eiga þátt í að móta starf UMSE næsta árið.
Að þessu sinni var kosið um formann, ritara og meðstjórnanda í stjórn UMSE. Nokkrar breytingar urðu á stjórninni, en Óskar Þór Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Einnig lét Kristlaug María Valdimarsdóttir af störfum sem ritari Sambandsins. Nýr formaður UMSE var kjörin Bjarnveig Ingvadóttir frá Umf. Svarfdælum, en hún snýr nú aftur til starfa innan íþróttahreyfingarinnar eftir nokkurra ár hlé. Ritari var kjöri Sigrún Finnsdóttir, Umf. Smáranum. Þorgerður Guðmundsdóttir, Umf. Samherjum, var endurkjörin sem meðstjórnandi. Í varastjórn, voru endurkjörin Guðrún Sigurðardóttir, Umf. Svarfdæla og Sigurður Eiríksson, Umf. Samherjum. Svanbjört Brynja Bjarkadóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í varastjórn og var í hennar stað kjörin Gunnar Ingi Ómarsson, Umf. Æskunni. Aðrir sem sitja í stjórn UMSE eru Edda Kamilla Örnólfsdóttir, varaformaður, frá Hestamannafélaginu Funa og Einar Hafliðason, gjaldkeri, frá Umf. Þorsteini Svörfuði.
Á þinginu var að venju veittur Félagsmálabikar UMSE. Bikarinn er veittur af stjórn til þess félags sem talið er hafa staðið sig hvað best varðandi innrastarfi félagsins, bæði varðandi íþróttastarf og almennt félagsstarf. Að þessu sinni hlaut Umf. Smárinn bikarinn og tók formaður félagsins, Jónína Garðarsdóttir, við viðurkenningunni .
Þinggerðin verður aðgengilega á vefsíðu Sambandsins, www.umse.is, innan skamms.
UMSE færir öllum þeim fulltrúum sem tóku þátt í þinginu þakkir fyrir vel unnin störf. Einnig er fráfarandi stjórnarfólki þökkuð þeirra störf í þágu Sambandsins og óskað velfarnaðar.