Efnistökusvæði í landi Munkaþverár – tillaga að deiliskipulagi

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti þann 10. júní 2015 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir efnistökusvæði í landi Munkaþverár skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan fellur undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgir henni umhverfisskýrsla.

Efnistökusvæðið er staðsett ofarlega á Munkaþveráreyrum, norðan Munkaþverár og vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Landnotkun til efnistöku er skilgreind á allt að 25.000 m2 svæði og er áætlað vinnslumagn allt að  75.000 m3.

Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 24. júní 2015 til og með 5. ágúst  2015. Tillagan verður einnig aðgengileg á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar á www.esveit.is.  Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er þannig gefinn kostur á að kynna sér tillöguna og gera athugasemd við hana. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Skólatröð 9, 601 Akureyri, eða á netfangið esveit@esveit.is í síðasta lagi þann 5. ágúst 2015.

Skipulagsfulltrúi Eyjafjarðarsveitar