Espihóll – íbúðarhús - Espilaut, Eyjafjarðarsveit – auglýsing skipulagslýsingar

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 12. janúar sl. að vísa skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og vegna nýs deiliskipulags fyrir fyrirhugað íbúðarhús á landareigninni Espihóll í kynningarferli skv. 30 gr. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin lýtur að því að nýtt 1, 5 ha svæði verði skilgreint sem íbúðarsvæði þar sem nú er skilgreint landbúnaðarsvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030.
Skipulagsverkefnið snýr að skipulagi lóðar fyrir íbúðarhús á óræktuðu landi.

Skipulagslýsingin er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 2. febrúar og 17. febrúar 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til föstudagsins 17. febrúar 2023.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulagsfulltrúi.