Fálkaorðan veitt á Bessastöðum

Sverrir Hermannsson safnamaður, Akureyri, fékk riddarakross fyrir stofnun Smámunasafnsins í Eyjafjarðarsveit og framlag til verndunar gamalla húsa. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sæmdi hann þessu heiðurmerki í dag 17.júní 2007. Smámunasafnið í Eyjafjarðarsveit er merkilegt safn allra mögulegra muna. Sjá heimasíðu safnsins www.smamunasafnid.is

sverrirfalkaorda

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2007, sæmdi forseti Íslands tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

1. Ásgeir J. Guðmundsson iðnrekandi, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks húsgagnaiðnaðar
2. Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir hótelstjóri, Ísafirði, riddarakross fyrir störf að ferðaþjónustu landsbyggðar
3. Björn R. Einarsson hljómlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskrar tónlistar
4. Guðjón Sigurðsson formaður MND samtakanna, Hafnarfirði, riddarakross fyrir forystu í málefnum sjúklinga
5. Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu orðfræða og íslenskrar tungu
6. Kristján Sæmundsson jarðfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskra jarðvísinda
7. Margrét Friðriksdóttir skólameistari, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í þágu menntunar og fræðslu
8. Pétur Sveinbjarnarson stjórnarformaður Sólheima, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að samhjálp og velferðarmálum
9. Steinunn Sigurðardóttir hönnuður, Reykjavík, riddarakross fyrir frumherjastörf í þágu fatahönnunar
10. Sverrir Hermannsson safnamaður, Akureyri, riddarakross fyrir stofnun Smámunasafnsins og framlag til verndunar gamalla húsa