Ferðastyrkir UMSE til íþróttafólks

Stjórn UMSE auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki til íþróttafólks innan UMSE. Styrkjunum er úthlutað eftir vinnureglum sem stjórn UMSE setur og miðast upphæð styrkjanna við samþykkta fjárhagsáætlun hverju sinni.

Hver einstaklingur getur einungis fengið einn styrk á hverju ári. Íþróttafólk getur sótt sjálft um styrkinn til stjórnar, en umsóknina þarf að staðfesta af forráðamanni íþróttafélagsins. Einnig geta aðildarfélög sótt um styrki fyrir hönd iðkenda. Úthlutað er tvisar á ári, í júní og október. Umsóknarfrestur er til 31. maí og 30. september.

Umsóknum þarf að skila til skrifstofu UMSE á þar til gerðum umsóknareyðublöðum.

Nánar um styrkina og vinnureglur um þær er að finna á vefsíðu UMSE . Þar er einnig að finna umsóknareyðublöð.

 Upplýsinar gefur skrifstofa UMSE.