Flutningi Reykjavíkurflugvallar mótmælt

Á fundi sveitarstjórnar 11. september var fyrirhugðum flutningi flugvallarins úr Vatnsmýrinni mótmælt. Eftirfarandi bókun var gerð á fundinum:

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur er nú í auglýsingu. Í tillögunni er gert ráð fyrir flutningi á flugvellinum úr Vatnsmýrinni.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar bendir á ábyrgð borgarstjórnar gagnvart landinu öllu og mótmælir því harðlega að flugvöllurinn verði færður nema nýr flugvöllur verði tryggður með sambærilegu öryggi og í svipaðri fjarlægð frá stjórnsýslu ríkisins og helstu þjónustu- og sjúkrastofnunum.”