Forsetakosningar 25. júní 2016

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit vegna forsetakosninganna 25. júní 2016 verður í Hrafnagilsskóla. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt.
Þeim sem eiga erfitt með gang er heimilt að aka út að skóla.

Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 899-4935.
Kjörstjórnin í Eyjafjarðarsveit 15. júní 2016.

Emilía Baldursdóttir, Níels Helgason, Ólafur Vagnsson