Göngur 2012

Þverárrétt
Þverárrétt

1. göngur verða 1.-2. sept. frá Fiskilæk að Æsustaðatungum. Þaðaðn inn úr og vestan Eyjafjarðarár verða þær 8.-9. sept. Vaðlaheiði og Fiskilækjarfjall ytra verða síðan smöluð 15. sept.

2. göngur verða 15. sept. frá Fiskilæk að Mjaðmárdal, en 22. og 23. sept. frá Möðruvallafjalli og suður úr og vestan Eyjafarðarár. Norðan Fiskilækjar verða 2. göngur 29. sept.

Hreinsa skal all ókunnugt fé úr heimalöndum fyrir auglýsta gangnadaga og koma til skila.

Óheimilt er að sleppa fé í afrétt að loknum göngum.

Gangnaseðla og bréf til fjáreigenda má sjá með því að smella á viðeigandi hlekki hér fyrir neðan:

Vaðlaheiði að Mjaðmárdal: Bréf - Gangnaseðill

Möðruvallafjall að Skjóldalsá: Bréf

Möðruvallafjall að Eyjafjarðardalsbotni: Gangnaseðill

Eyjafjarðardalsbotn að Djúpadalsbotni: Gangnaseðill

Hvassafellsdalur að Skjóldalsá: Gangnaseðill

Skjóldalsá og norður úr: Bréf - Gangnaseðill