Göngur og réttardagar 2018

Gangnadagar

1. göngur í Öngulsstaðadeild sunnan Fiskilækjar verði föstudaginn 31. ágúst og laugardaginn 1. september. Norðan Fiskilækjar og í Hrafnagils- og Saurbæjardeild verður gengið 8.-9. september. 
2. göngur verði tveim vikum síðar þ.e. 14.-15. september og 21.-22. september.

Hrossasmölun verður föstudaginn 5. október. Stóðréttir verði 6. október.
Ef efni eru til eftirleitar skal miðað við að þær verði farnar eigi síðar en 21. október.

Hreinsa skal allt ókunnugt fé úr heimalöndum fyrir auglýsta gangnadaga og koma til skila. Óheimilt er að sleppa fé í afrétt að loknum göngum.
Ekki má flytja sauðfé yfir varnarlínur nema með sérstöku leyfi.

Réttardagar
Þverárrétt sunnudagur 2. sept. kl. 10:00.
Möðruvallarétt sunnudagur 9. sept. þegar komið er að.
Hraungerðisrétt laugardagur 8. sept. þegar komið er að.
Vatnsendarétt sunnudagur 9. sept.
Vallarétt sunnudagur 9. sept. kl. 10:30.
Í aukaréttum þegar komið er að.