Haustverkin kalla

laufas_120

 

Fréttatilkynning frá Minjasafninu á Akureyri

Haustverkin kalla í Gamla bænum Laufási

Laugardaginn 17. október kl 13:30-16


Hefur þú séð hvernig kindahausar eru sviðnir? Hefur þú fylgst með alvöru sláturgerð? Hefur þú smakkað heimagerða kæfu, slátur, kartöflurúgbrauð eða fjallagrasamjólk? Ef ekki þá er tilvalið að leggja leið sína í Gamla bæinn í Laufási laugardaginn 17. október milli kl 13:30 og 16 til þess upplifa gamla tíð með öllum skynfærum.
Tóvinnufólk verður að störfum, smalinn Þór Sigurðarson segir sögur og forvitnilegur haustmarkaður með ýmsu góðgæti fyrir munn og maga verður í skálanum. Lummukaffi verður til sölu í Gamla prestshúsinu og þar verður ljúf tónlist leikin af fingrum fram.
Dagurinn hefst kl 13:30 með góðri samverustund í kirkjunni undir stjórn sr. Bolla Péturs Bollasonar.