Kattahald

Fréttir

Nú er varptíminn í algleymingi og vert að minna á 9. og 15. gr. samþykktar um hunda og kattahald, en þar segir m.a.:
„Eigendum og forráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, t.d. með því að takmarka útiveru þeirra og eftir atvikum hengja á þá bjöllu.”

Í samþykktinni kemur einnig m.a. fram að eigendur eða umráðamenn katta skulu gæta þess að dýrin valdi ekki hættu, óþægindum, óþrifnaði, óöryggi eða verði mönnum til óþæginda á annan hátt. Ef dýrin valda nágrönnum eða öðrum ónæði, óþrifum eða tjóni þá er eiganda eða umráðamanni skylt að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt.

Nauðsynlegt er að halda fjölgun katta í hófi. Vanti kattagildru eða aðstoð við fækkun katta má hafa samband í vaktsíma 463-0615.
Sveitarstjóri.