Kvennahlaup í Eyjafjarðarsveit

Kvennahlaupið var haldið í blíðskaparveðri sl. laugardag. Um 40 hlauparar á öllum aldri tóku þátt sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár.  Eftir hlaupið var haldin létt og skemmtileg fjölskylduskemmtun sem Íþrótta- og tómstundanefnd stóð að með aðstoð hestamannafélasins Funa og björgunarsveitarinnar Dalbjargar. Við þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg fyrir aðstoðina.