Landsmót UMFÍ á Akureyri 9-12. júlí 2009

landsmot_umfi_120 Landsmót UMFÍ, það 26. í röðinni, verður haldið á Akureyri dagana 9. til 12. júlí í sumar. Mótið verður sögulegt því í ár eru liðin eitthundrað ár frá því að fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri. Þessara tímamóta verður minnst á ýmsan hátt í tengslum við landsmótið. Landsmót UMFÍ eru fjölmennustu íþróttamót á Íslandi, ætla má að keppendur verði um 2.000 og búast má við að landsmótsgestir verði á annan tug þúsunda.
 
Þetta verður fjórða Landsmót UMFÍ á Akureyri. Fyrri mót voru árið 1909, 1955 og 1981.

Undirbúningur landsmótsins á Akureyri hefur staðið yfir síðan síðasta móti, sem var í Kópavogi sumarið 2007, var slitið. Undirbúningur og framkvæmd mótsins er og hefur að stærstum hluta verið í höndum tólf manna landsmótsnefndar, en í henni eru fulltrúar Ungmennafélags Íslands, Ungmennasambands Eyjafjarðar, Ungmennafélags Akureyrar og Akureyrarbæjar.

Sérstaða Landsmóta UMFÍ felst ekki síst í fjölda keppenda og gesta sem tekur þátt í mótinu. Keppt er í miklum fjölda hefðbundinna keppnisgreina auk svokallaðra starfsíþrótta.
Á landsmótinu á Akureyri verður keppt í: Frjálsum íþróttum, golfi, sundi, badminton, borðtennis, blaki, bridge, dansi, glímu, handknattleik, hestaíþróttum, júdó, knattspyrnu, körfuknattleik, siglingum, skotfimi, skák, fimleikum og íþróttum fatlaðra. Starfsíþróttirnar verða á sínum stað – dráttarvélaakstur, gróðursetning, hestadómar, jurtagreining, lagt á borð, pönnukökubakstur, stafsetning o.fl. Auk þess verður keppt í nokkrum almenningsgreinum sem ekki reiknast til stiga í stigakeppni mótsins.

Nú þegar er búið að tímasetja og staðsetja bróðurpart keppnisgreina á Landsmótinu og er allar upplýsingar um það finna á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi.is

Formleg mótsetning verður á hinum nýja íþróttaleikvangi föstudagskvöldið 10. júlí og þar fara mótslit einnig fram sunnudaginn 12. júlí.
Keppni hefst á Landsmótinu um hádegisbil fimmtudaginn 9. júlí og því verður slitið um hádegi sunnudaginn 12. júlí.

Landsmót UMFÍ mun setja mark sitt á Akureyri mótsdagana. Allur bærinn verður iðandi af mannlífi. Öll íþróttamannvirki bæjarins verða undirlögð á meðan á mótinu stendur og á ýmsan annan hátt mun það ekki fara framhjá nokkrum manni að 100 ára afmælismót Landsmóta UMFÍ fer fram í bænum. Til dæmis er stefnt að því að bjóða öllum landsmönnum til afmælisveislu laugardaginn 11. júlí og hundrað ára saga landsmótanna mun birtast bæjarbúum og gestum í mörgum myndum á meðan á mótinu stendur.
Ástæða er til að undirstrika að aðgangur að öllum viðburðum undir merkjum Landsmóts UMFÍ er ókeypis.