Lausar stöður í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit

Fréttir

Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli u.þ.b. 12 km. fyrir innan Akureyri og eru u.þ.b. 170 nemendur í skólanum. Hrafnagilsskóli er heilsueflandi grunnskóli og uppeldisstefnan er Jákvæður agi. Skólaþróun síðustu ár hefur m.a. snúist um heilsueflingu, tölvur og tækni.

Grunnskólakennari/sérkennari í sérdeild
Óskum eftir að ráða grunnskólakennara í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2022. Um er að ræða sérkennarastöðu í sérdeild unglingsstúlkna sem dvelja á Meðferðarheimilinu að Laugalandi.

Leitað er eftir kennara sem:

  • Hefur reynslu af kennslu á unglingastigi.
  • Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
  • Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
  • Vinnur í samvinnu við kennara og annað fagfólk.
  • Sýnir árangur í starfi.
  • Er fær og lipur í samskiptum.
  • Býr yfir frumkvæði og skipulagsfærni og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.

Menntun í sérkennslufræðum er æskileg.

Grunnskólakennari á yngsta stigi
Óskum eftir að ráða grunnskólakennara í 80% starfshlutfall frá 1. ágúst 2022. Í starfinu felst:

  • Námsstuðningur við nemendur og samvinna við kennara og starfsfólk.

Leitað er eftir kennara sem:

  • Hefur kennaramenntun.
  • Sýnt hefur árangur í starfi.
  • Hefur áhuga á og færni til að nýta tækni í skólastarfi.
  • Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
  • Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
  • Er í góðri samvinnu við foreldra og allt starfsfólk.
  • Er fær og lipur í samskiptum.
  • Býr yfir frumkvæði og skipulagsfærni og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hefur reynslu og þekkingu á Byrjendalæsi og fleiri kennsluaðferðum.

 

Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2022.

Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur; Hrund Hlöðversdóttir og Björk Sigurðardóttir í símum 464-8100 og 699-4209 eða á netföngin hrund@krummi.is og bjork@krummi.is

Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is