Leikskólinn Krummakot óskar eftir að ráða starfsmann í ræstingar

Um er að ræða 50% starf í sex mánuði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 9. janúar 2014. Vinnutími er á dagvinnutíma, frá kl. 12:00 – 16:00 eða 13:00 – 17:00 eftir samkomulagi.
Óskað er eftir jákvæðum og traustum einstaklingi sem  á auðvelt með samskipti og sveigjanleika í starfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Einingar-Iðju og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 7. janúar n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir skólastjórnandi í síma 464-8120/ 892-7461, netfang hugruns@krummi.is