Leikskólinn Krummakot óskar eftir að ráða starfsmann í ræstingar

Um er að ræða 50% starf frá 1. júní - 8. júlí. Vinnutími er á dagvinnutíma, frá kl. 9:00 - 13:00 eða 10:00 – 14:00 eftir samkomulagi.

Óskað er eftir jákvæðum, traustum og vandvirkum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og sveigjanleika í starfi.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Einingar-Iðju og Launanefndar sveitarfélaga.

Umsókn skal fylgja ferilskrá  og nöfn meðmælenda sem hafa má samband við.
Umsóknarfrestur er til 20. maí n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir leikskólastjóri í síma 464-8120/ 892-7461, netfang hugruns@krummi.is