Risakýrin Edda í Eyjafjarðarsveit

Fréttir

Stjórn Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar hefur ráðist í stórt verkefni og fengið til liðs við sig magnaða listakonu, Beate Stormo eldsmið.
Segja má að frábær hugmynd hafi orðið að veruleika og nú er verkefnið komið vel af stað.
Hugmyndin var að finna sameiningartákn fyrir Eyjafjarðarsveit, eitthvað stórt og flott og eitthvað sem allir vildu koma og sjá.
Það er gríðarlega mikil mjólkurframleiðsla í Eyjafjarðarsveit og því var ákveðið að tákn sveitarinnar yrði mjólkurkýr.
Niðurstaðan er risastór járnskúlptúr af kú sem verið er að búa til þessa dagana. Beate Stormo í Kristnesi var fengin í verkið. Hún er margfaldur Íslandsmeistari í eldsmíði og Evrópumeistari. Hún er afskaplega vandvirk og fer alla leið í því sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún er búin að hanna kúna og verður hún hol að innan með víravirkismynstri á hliðunum, sem vísa í víravirkið á íslensku þjóðbúningunum til dæmis. Einnig verða borðar með textum úr sögum og ljóðum um kýr. Kýrin heitir Edda en Edda þýðir formóðir og er það tilvísun í Eddukvæðin okkar, sem er ættmóðir allra ritverka okkar Íslendinga. Á sama hátt er kýrin Edda frjósöm og allt um vefjandi móðir sem hefur fætt okkur í gegn um aldirnar.
Til þess að ráðast í þetta risaverkefni þurfum við styrki. Nokkur fyrirtæki hafa styrkt verkefnið en betur má ef duga skal. Ákveðið var að ráðast í hópfjármögnun og er hún farin af stað.

Sjá nánar hér um verkefnið á facebook - Risakýrin Edda í Eyjafjarðarsveit