Námskeiðið "Verndum þau" í samstarfi UMSE við Æskulýðsvettvanginn

Ungmennasamband Eyjafjarðar, í samstarfi við Æskulýðsvettvanginn, mun standa fyrir námskeiðinu "Verndum þau" á Dalvík og Hrafnagili.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna.
Farið verður yfir hvernig bregðast eigi við vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er byggt á bókinni Verndum þau. Höfundar bókarinnar stýra námskeiðinu; Ólöf Ásta Farestveit er uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir er með BA í sálfræði. Þær starfa báðar í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.
Við hvetjum sem flesta til þess að skrá sig og mæta á námskeiðið.

Á námskeiðinu verður farið yfir:
• Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
• Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
• Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru
þolendur ofbeldis.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

13. nóvember Dalvíkurskóli, kl. 16:30-19:30

14. nóvember Félagsborg á Hrafnagili kl. 16:15-19:15

Skráning fer fram í tölvupósti: umse@umse.is og í síma: 868-3820 Skráningarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 12. nóvember.

Við hvetjum sem flesta til þess að skrá sig og mæta á námskeiðið.

Frekari upplýsingar veitir skrifstofa UMSE