Upplýsingar frá Tyrggingastofnun varðandi barnalífeyri vegna náms/starfsþjálfunar.

Umsókn um barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar og framlag vegna náms eða starfsþjálfunar fer fram rafrænt á vef Tryggingastofnunar, tr.is, Mínar síður. Með umsókn þarf að fylgja skólavottorð sem sýnir í hve mikið
nám umsækjandi er skráður. Barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar þarf að sækja um á hverri önn og á skólavottorði þarf að koma fram námsárangur á síðustu önn ásamt staðfestingu á fjölda eininga á næstu önn.

Mánaðarleg upphæð greiðslna á árinu 2016 er 29.469 kr.
Afgreiðslutími umsókna er að hámarki 4 vikur eftir að umsókn og öllum fylgigögnum hefur verið skilað inn.

Rétt til barnalífeyris vegna náms eða starfsþjálfunar geta þeir átt sem eru á aldrinum 18-20 ára og eru í námi / starfsþjálfun og búa á Íslandi:

  •  Ef annað foreldri eða báðir eru lífeyrisþegar.
  •  Ef annað foreldri eða báðir eru látnir.
  •  Ef fyrir liggur úrskurður sýslumanns um efnaleysi meðlagsskylds foreldris.
  •  Ef barn er ófeðrað.

Rétt til framlags vegna náms eiga þeir sem eru á aldrinum 18-20 ára og eru í námi / starfsþjálfun og búa á Íslandi:

  • Ef fyrir liggur úrskurður sýslumanns eða samningur staðfestur af honum um að foreldri skuli greiða framlag vegna menntunar.

Nánari upplýsingar á tr.is: