Úrslit í bæjakeppni Funa 2015

Við viljum þakka öllum þeim bæjum og húsum sem tóku þátt í bæjakeppninni og styrktu þar með starf hestamannafélagsins Funa.

Úrslit voru eftirfarandi:

Barnaflokkur

  1. Kristján Árni Birgisson á Sálmi frá Skriðu, kepptu þeir fyrir Breiðablik
  2. Sindri Snær Stefánsson á Vísi frá Árgerði, kepptu þeir fyrir Samkomugerði 2, Hönnu og Baldvin
  3. Bergþór Bjarmi Ágústsson á Hraftinnu frá Kálfagerði, kepptu þau fyrir Samkomugerði 1

Unglingaflokkur

  1. Sara Þorsteinsdóttir á Gusti frá Grund, kepptu þau fyrir Ytra-Laugaland 2

Í ungmennaflokki var enginn keppandi en bikarinn var dreginn í Kristnes 6, Anna Rappich

Kvennaflokkur

  1. Jóhanna Schulz á Karen frá Árgerði, kepptu þær fyrir Kvist
  2. Rósa Hreinsdóttir á Gusti frá Halldórsstöðum, kepptu þau fyrir Hjallatröð 1
  3. Anna Kristín Árnadóttir á Efa frá Fornhaga 2, kepptu þau fyrir Festarklett

Karlaflokkur

  1. Stefán Birgir Stefánsson á Eldborgu frá Litla-Garði, kepptu þau fyrir Holtselsbúið
  2. Sveinn Ingi Kjartansson á Leiru-Björk frá Naustum, kepptu þau fyrir Hjallatröð 2
  3. Jacob-jan Rijnberg á Jarl frá Árgerði, kepptu þeir fyrir Skálpagerði

Farandbikarinn dróst þetta árið á Ytra-Laugaland 2 til Þorgerðar og Daníels

Bestu kveðjur frá stjórn, mótanefnd og húsnefnd Funa