Aðsóknarmet á Handverkshátíð

Aldrei hafa jafn margir sótt Handverkshátíð og nú í ár. Aðsóknarmet hafa verið slegin bæði í dag, laugardag sem og í gær. Landbúnaðarsýningin sem Búnaðarsamband Eyjafjarðar stendur fyrir í tilefni af 80 ára afmæli sambandsins hefur jafnframt dregið til sín fjölda gesta. Mikil veðurblíða á svæðinu hefur kætt bæði gesti og starfsfólk sýninganna.

Sýningarhaldarar búast við áframhaldandi metaðsókn á morgun, sunnudag og á mánudaginn, enda veðurspáin góð og allt leggst á eitt við að gera þessa daga ógleymanlega öllum þeim sem að sýningunum koma.

Myndir frá sýningunum má sjá á heimasíðu Handverkshátíðar www.handverkshatid.is