Síðari umræða um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Í dag föstudag er til síðari umræðu fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2009. Vaninn er að við gerð áætlana eru þær nánast fullmótaðar þegar til seinni umræðu kemur og á ég því ekki von á breytinum á tillögunni. Í ljósi þess ætla ég að fara yfir helstu áherslur og efnisatriði sem mest snerta íbúana og teljast til skerðingar á þjónustu.

Þegar ljóst varð í hvað stefndi með tekjur sveitarfélagsins var ákveðið að kalla saman allar nefndir til vinnufundar og
er fjárhagsáætlunin sem nú er lögð fram afrakstur þeirrar vinnu.
Það sem liggur fyrir er að póstdreifingu á laugardögum verður hætt, sveitapósturinn lagður niður í núverandi mynd og í staðinn kemur út á föstudögum einblöðungur sem verður dreift af Íslandspósti. Þessi ráðstöfun sparar um 2 milljónir á ári. Framkvæmd Handverkshátíðar verður breytt og fjárhagsleg áhætta færð frá sveitarfélaginu til hagsmunaaðila. Þessi ráðstöfun sparar rúmar tvær milljónir. Ekki er að fullu búið að útfæra allar hugmyndir um sparnað í íþróttamannvirkjum sveitarinnar. Hagræðing í rekstri þar gæti sparað 1-2 milljónir og felst það m.a. í lokun vaðlaugar í miðri viku og sundlaugarkers fyrr á kvöldin. Sundlaugin verður samt opin fyrir pott og gufu eins og venjulega. Með þessu er hægt að spara í mannahaldi og öðrum rekstrarkostnaði. Stærri styrkir í öllum málaflokkum verða lagðir af og þær beiðnir sem berast á árinu verða skoðaðar og metnar, sveitarstjórn mun síðan fjalla um beiðnirnar og taka ákvörðun í hverju tilfelli fyrir sig. Þetta gæti sparað umtalsvert fé og lætur nærri að sparnaðurinn verði rúmar fjórar milljónir. Hugmyndir eru uppi um innkaupabann búnaðar ef uppæðin er hærri en fimmtíuþúsund krónur, hærri upphæðir verða háðar samþykki sveitarstjóra. Ekki er ljóst hvað þetta gæti sparað en með þessu er verið að auka verulaga á aðhald í rekstri. Útgjöld til menningarmála eru skorin mjög mikið niður. Reiknað er með að flestir menningarviðburðir verði sjálfbærir og kostnaði við þá ekki velt á sveitarsjóð. Tónlistardagskrá í Laugarborg verður ekki lengur á höndum og í fjárhagslegri umsjón sveitarinnar. Með þessum mikla niðurskurði sparast um 6 milljónir króna.
Í Tónlistarskólanum er áætluð skerðing á þjónustu sem bitnar mest á fullorðnum nemendum. Börn og unglingar undir 20 ára sitja fyrir og verða fyrir óverulegri skerðingu. Dregið verður úr undirleik og samsöng og nemendur fá aðeins að vera í einni námsgrein. Fækkun stöðugilda í Tónlistarskólanum verður 1,3 og snertir breytingin fimm kennara. Undanfarin ár hefur verið lögð mikil áhersla á umgjörð Hrafnagilsskóla og hefur skólinn notið mikils velvilja sveitarstjórnar, markvist var hlúð að starfinu með fjárveitingum til skólans. Nú bregður svo við að uppsagnir starfsmanna og kennara eru eina leiðin til að loka fjárhagsramma sveitarfélagsins. Fræðslumálin taka til sín tæp 70% af rekstarakostnaði sveitarinnar og útilokað er að leggja fram hallalausa fjárhagsáætlun án þess að skerða framlög til skólans. Auk uppsagna í skólanum verður aukið á allt aðhald í rekstri, vettvangsferðir sem kallað hafa á kostnað verða aflagðar og þess í stað hugað að ferðum sem ekki útheimta útgjöld. Kennslu í heimilisfræðum hafa fylgt útgjöld í formi skólaaksturs, við þá ákvörðun að hætta kennslu í heimilisfræðum sparast tæpar 2 milljón í aðkeypta þjónustu.
Dregið verður úr og sparað í yfirstjórn sveitarfélagsins, auk 4,2% niðurskurðar eru uppi hugmyndir um enn meiri sparnað en þess má geta að í samanburði við önnur sveitarfélög er yfirstjórnarkostnaður pr. íbúa í Eyjafjarðarsveit er lægri samanborið við sambærileg sveitarfélög. Nú liggur fyrir tillaga um fækkun nefnda og fækkun fólks í nefndum, fækkun funda sveitarstjórnar auk annarra aðgerða sem minnka útgjöld sveitarinnar. Þessi breyting gæti sparað sveitarsjóði á bilinu 600 þúsund til 1,0 milljón króna.
Það er afar mikilvægt að bregðast við ástandinu strax svo við komumst fyrr út úr þessum þrengingum. Auðvitað eru ekki allir sammála um aðferðir og áherslur en við þessa vinnu var kallað eftir sjónarmiðum og hugmyndum frá fjölda fólks. Tíminn einn mun leiða í ljós hvernig okkur tekst til. Ég ber þá von í hjarta að við komumst fljótt á sama stall og við höfum verið á undanfarin ár.
Guðmundur Jóhannsson, sveitarstjóri.