Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir tímabundinni afleysingu í móttökueldhús

Fréttir

Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir tímabundinni afleysingu í móttökueldhús.

● Um er að ræða 50 - 100% stöðu eða e.t.v tvær 50% stöður.
● Afleysing a.m.k. bara í desember en möguleiki á meiri vinnu.
● Æskilegt er að byrja sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Allur matur er eldaður í eldhúsinu í Hrafnagilsskóla þannig að það þarf að taka á móti matnum og græja fyrir bæði matsal og vagna. Síðan er það frágangur og uppvask sem og að sjá um allan þvottinn. Þar sem að hann er mikill á svona stóru heimili.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 74 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára.
Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.

Menntunar- og hæfniskröfur
● Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
● Metnaður og áhugi til að taka þátt í góðu skólastarfi.

Umsóknarfrestur er til 15. des 2023.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is