Lóðir á tilboðsverði

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að fella niður gatnagerðargjald af lóðum við Bakkatröð í Hrafnagilshverfi tímabundið.  Þess í stað er óskað eftir tilboðum í byggingarrétt á lóðunum.

Tilboðum í lóðirnar skal skilað til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í seinasta lagi mánudaginn 9. sept. kl. 14 og verða þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Yfirlit um lóðirnar má fá með því að smella hér, en nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri.