Minning Birgir Þórðarson

Fréttir

Í dag fer fram útför Birgis Þórðarsonar fyrrverandi oddvita Eyjafjarðarsveitar.
Birgir var oddviti Öngulsstaðahrepps um árabil. Hann vann að sameiningu hreppanna sunnan Akureyrar sem mynduðu Eyjafjarðarsveit 1. janúar 1991. Birgir var fyrsti oddviti Eyjafjarðarsveitar og gengdi því embætti til 1998.
Eyjafjarðarsveit þakkar Birgi mikið og óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélagsins og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.