Sumarstörf 2022

Fréttir

Erum að ráða í nokkur sumarstörf í okkar frábæra umhverfi í Eyjafjarðarsveit. Góð laun í fjölbreyttum störfum sem veita góða reynslu. 

  • Sumarstarf í sundlaug Eyjafjarðarsveitar - 100% vaktavinna
  • Sumarstarf á tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar - 100% vaktavinna
  • Sumarstarf í vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar - 100% dagvinna - stjórnunarstarf

Sendu okkur umsókn á erna@esveit.is


Sumarstarf í sundlaug Eyjafjarðarsveitar

Óskum eftir að ráða karl til starfa í 100% starf í vaktavinnu í sundlauginni í sumar.

Helstu verkefni eru m.a.:
• Sundlaugargæsla
• Þjónusta við gesti sundlaugar og tjaldsvæðis
• Þrif á húsnæði og útisvæði
• Afgreiðsla

Hæfniskröfur:
• Viðkomandi verður að vera orðinn 18 ára
• Geta staðist hæfnispróf sundstaða skv reglum um öryggi á sundstöðum
• Hafa góða athyglisgáfu
• Eiga auðvelt með að taka ákvarðanir og geta brugðist skjótt við ef slys ber að höndum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Hafa gott vald á íslensku og ensku
• Þjónustulund
• Stundvísi
• Jákvæðni

Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Tekið er á móti umsóknum á netfangið erna@esveit.is.

Nánari upplýsingar um starfið og fyrirkomulag vakta gefur Erna Lind í síma 895-9611.


Sumarstarf á tjaldsvæði Eyjafjarðarsveitar

Um er að ræða tvær 100% stöður í vaktavinnu á tjaldsvæði ásamt öðrum störfum.

Helstu verkefni eru m.a.:
• Umsjón og umhirða tjaldsvæðis og þjónusta við gesti
• Þrif á aðstöðu tjaldsvæðis
• Sláttur
• Vöktun á gámasvæði
• Önnur verkefni

Hæfniskröfur:
• Umsækjendur verða að vera orðnir 20 ára
• Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð
• Þjónustulund
• Hafa gott vald á íslensku og ensku
• Stundvísi
• Jákvæðni

Næstu yfirmenn eru forstöðumaður eignasjóðs og forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Tekið er á móti umsóknum á netfangið erna@esveit.is

Nánari upplýsingar um starfið og fyrirkomulag vakta gefa Elmar í síma 891-7981 og Erna Lind í síma 895-9611.


Sumarstarf í vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar - Stjórnunarreynsla í frábæru umhverfi

Um er að ræða stöður verkstjóra og flokkstjóra vinnuskóla í sumar.
Starfstími vinnuskólans er frá byrjun júní fram í ágúst.

Helstu verkefni eru m.a.:
• Stjórna starfi nemenda vinnuskólans
• Leiðbeina nemendum og fræða þá um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu
• Vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda í vinnuskólanum
• Halda utan um mætingar og ástundun nemenda

Hæfniskröfur:
• Bílpróf er skilyrði
• Hafa gott vald á íslensku
• Áhersla er lögð á vinnusemi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Vera góð fyrirmynd
• Skipulag, stundvísi og jákvæðni
• Reynsla af starfi með unglingum er kostur

Næsti yfirmaður er forstöðumaður eignasjóðs.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Tekið er á móti umsóknum á netfangið esveit@esveit.is

Nánari upplýsingar um starfið gefur Elmar í síma 891-7981.