Tilkynning frá Menningarráði Eyþings

Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarmála

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings.
Menningarráð Eyþings hefur ákveðið að árið 2007 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

• Áhersla á vetrartímann (vetrarmenningu og vetrarlist)
• Samstarf yfir vetrartímann milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað
• Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs
• Skapandi starf fyrir börn og unglinga

Umsóknarfrestur er til og með 31. október. Úthlutun fer fram í nóvember.
Nánari upplýsingar ásamt úthlutunarreglum má finna á heimasíðu Eyþings www.eything.is
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá Menningarfulltrúa Eyþings Strandgötu 29, 3. hæð.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is

Í tengslum við úthlutunina verður menningarfulltrúi með viðtalstíma víðsvegar um svæðið. Viðtalstímar á Akureyri verða 22. og 23. október kl. 13-17 á skrifstofu menningarfulltrúa Strandgötu 29, 3. hæð.