Auglýsingablaðið

1200. TBL 05. júlí 2023

Auglýsingablað 1200. tbl. 15. árg. 5. júlí 2023.

 


Fræðslunámskeið fyrir ungmenni fædd 2007-2009
Vinnuskólinn býður upp á fræðslu fyrir ungmenni fædd 2007-2009, búsett í Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 11. júlí kl. 12:30.
Fræðslan snýr að réttindum og skyldum á vinnustað frá stéttarfélaginu Einingu-Iðju og um öryggi á vinnustöðum.
Ekkert þátttökugjald.
Skráning á netfangið vinnuskoli@esveit.is

 


Ferðaþjónusta á Leifsstöðum 2, Eyjafjarðarsveit – auglýsing deiliskipulagstillögu

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 27. júní 2023 að vísa deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu á Leifsstöðum 2 í auglýsingu skv. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan tekur til byggingar tveggja íbúðarhúsa, 1500 fm viðbyggingar við hótel, þriggja frístundahúsa, tíu gistihýsa, starfsmannahúss og aðstöðuhúss. Auk þess er gert ráð fyrir tjaldsvæði, götum milli húsa og landmótun á svæðinu.

Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, á heimasíðu sveitarfélagsins, esveit.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á gera athugsemdir við skipulagstillöguna til miðvikudagsins 16. ágúst 2023. Allar innsendar umsagnir og athugasemdir halda áfram gildi sínu. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulagsfulltrúi.

 


Stóri-Hamar 1, Eyjafjarðarsveit – kynning skipulagslýsingar vegna breytingar á aðalskipulagi vegna efnistöku

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 13. júní sl. að vísa skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030, vegna efnistökusvæðis í landi Stóra-Hamars 1 (L152778), í kynningarferli skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsverkefnið snýr að því að skilgreina efnistökusvæði í landi Stóra-Hamars 1 sem í gildandi aðalskipulagi er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Svæðið sem um ræðir er staðsett vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Þá eru sett ákvæði varðandi stærð svæðisins og magn efnis sem heimilt er að taka úr því.

Skipulagslýsing vegna verkefnisins liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 4. til 18. júlí 2023, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vefnum www.skipulagsgatt.is undir máli nr. 304/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til þriðjudagsins 18. júlí 2023 til að gera athugasemdir við skipulagslýsinguna. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef skipulagsgáttar. Einnig er hægt að senda inn skriflegar athugasemdir og skulu þær berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

Skipulagsfulltrúi.

 


Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. - 30. september

Markmið íþróttavikunnar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive. 

Heilsueflandi Eyjafjarðarsveit mun setja upp dagskrá í samráði við einstaklinga og félagasamtök sem áhuga hafa á að standa fyrir kynningum á íþróttagreinum eða annarri hreyfingu í anda þessa verkefnis.

Karl Jónsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar mun halda utan um undirbúninginn og eru allir þeir sem áhuga hafa á að koma með dagskráratriði beðnir um að hafa samband við hann í síma 464-8140 á dagvinnutíma eða á netfanginu karlj@esveit.is.

Dagskrá síðustu íþróttaviku má sjá undir þessum tengli hér https://www.esveit.is/is/moya/news/ithrottavika-evropu-239-309

Getum við bætt efni síðunnar?